English

Ottó Guðjónsson lýtalæknir

Blettir og vörtur

Ertu að hugsa um að láta fjarlægja bletti eða vörtur?

Blettir og vörtur geta verið af ýmsu tagi. Blettirnir eru oftar en ekki hættulausir en ef þeir angra fólk er ástæða til þess að skoða möguleikann á að fjarlægja þá. Blettir geta verið, fæðingarblettir, húðsepar – sem eru góðkynja yfirborðsbreyting í húðm, stíflaður fitukirtlar svokallaðir elli- eða sólarblettir. Mikilvægt er að láta lækni skoða fæðingabletti ef þeir taka upp á að stækka og/eða dökkna. Þá getur verið um illkynja breytingu að ræða. Því getur verið nauðsynlegt að fjarlægja og rannsaka slíka bletti en einnig geta þeir verið óheppilega staðsettir og fólk vill losna við þá af þeim sökum.

Blettataka

Það fer eftir eðli bletta og varta hvernig þeir eru fjarlægðir. Oftast er hægt að fjarlægja blettinn og loka húðinni beint en stundum þarf að flytja aðlæga húð til að loka sárinu eða húð er tekin frá lítið áberandi stað til að loka sárinu. Ef grunur leikur á illkynja breytingu bletta er þeir lagðir í formalin vökva og sendir til rannsóknar. Það getur því tekið allt að fjórum vikum að fá endanlegt svar hvers eðlis bletturinn var og hvort allur bletturinn hafi verið fjarlægður (stundum nær bletturinn lengra inn á heilbrigða húð en sýnilegt er með berum augum) og getur þá þurft að endurtaka aðgerðina til að ná blettinum að fullu burtu.

Undirbúningur, aðgerð og eftir aðgerð.

Aðgerðina er langoftast hægt að gera í staðdeyfingu og þarf sjúklingur þá ekki að vera fastandi. Mikilvægt er að fara í góða sturtu heima kvöldið fyrir aðgerð eða um morguninn en nota ekki krem, rakakrem eða aðrar snyrtivörur. Venjulega eru mjög litlir verkir eftir svona aðgerð en hugsanlega þarf að nota verkjalyf í 1-2 daga á eftir. Eins og eftir allar aðgerðir áttu að taka því rólega á eftir til að minnka blæðingarhættu og að bólgan verði sem minnst.
Ef sárið bólgnar mikið eða hiti eða auknir verkir gera vart við sig er mikilvægt að hafa samband v ið lækni strax. Þegar blettir eru fjarlægðir kemur ör. Skurðurinn er lagður þannig að örið verði sem minnst áberandi. Það fer eftir staðsetningu og stærð blettanna hvernig húðinni er lokað. Stundum þarf að fjarlægja saumana en þó ekki alltaf.Til að ná sem bestum árangri og að örið verði sem minnst sýnilegt er mælt með því að nota pláturslímband á örið í allt að 6 mánuði.

Ottó Guðjónsson.

Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600
 
Sérgrein:
Lýta- og fegrunaraðgerðir
Aðsetur:
Álfheimar 74, 7. hæð, 108 Reykjavik
Sími:
515 1600